144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:16]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það er náttúrlega ljóst að málsmeðferðin öll á þinginu í vetur og núna í þessari umræðu stenst ekki þær kröfur sem gera verður til eðlilegrar málsmeðferðar á Alþingi. Það er, hvað sem hver segir, í besta falli mikill lagalegur vafi á því að breytingartillagan sé þingtæk. Hún stríðir að dómi okkar mjög margra beint við lög um rammaáætlun, hún brýtur að sjálfsögðu klárlega algerlega til grunna niður anda þeirra laga sem eru um faglega og vandaða vinnu til að komast að niðurstöðu um röðun virkjunarkosta.

Það er líka gallað frá þingræðislegu sjónarmiði séð að umbylta eðli máls og stærð við síðari umræðu þegar ein umræða um mál er eftir. Það vita allir sem einhverja þingreynslu hafa, það hefur aldrei þótt góð latína þegar um frumvörp, og ég tala nú ekki um þingsályktunartillögur, er að ræða. Svo eru það ófriðareldarnir sem þessi málatilbúnaður kveikir inni í þinginu, meðal allra umhverfisverndarsinna og umhverfissamtaka í landinu og úti í samfélaginu. Fólki er brugðið. Ég hef aðeins náð að skjótast út (Forseti hringir.) í samfélagið til Akureyrar og úti í bæ hér og það spyrja allir að fyrra bragði: Er ástandið á Alþingi svona ofan í (Forseti hringir.) upplausnina á vinnumarkaði? Það er ekki hughreystandi (Forseti hringir.) fyrir fólk að horfa upp á þetta.