144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

um fundarstjórn.

[20:42]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Frú forseti. Það vill nú svo til að sá sem hér talar á eftir hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni er gamall pokamaður á togurum og fékk aldrei fráleyst. En það er hins vegar nöturlegt að vita til þess að sá sem hér hefur farið úr þessum stól stórum orðum um að hann líti á sig sem fulltrúa stórútgerðarinnar, sjómaðurinn í hópnum, er sá sem fyrir hönd íslenska þingsins kemur með allt fráleyst. Það er hann og formaður atvinnuveganefndar sem ekki lengur kunna pokahnútinn, og það eru þeir sem m.a. koma í veg fyrir það að góðir menn eins og hv. þm. Ásmundur Friðriksson, sem talar hér kvöld eftir kvöld um að menn vilji sættast og finna lausn og það sé hægt, það eru mennirnir sem koma fráleyst með í hvert einasta skipti sem trollinu er kastað út sem valda því, og ábyrgð þeirra er mikil.