áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Hér höldum við áfram að ræða þetta mjög svo umdeilda mál. Ég hafði reyndar einsett mér að reyna að vera á jákvæðu nótunum án þess að ég sé mjög hrifin af því sem hér á að framkvæma, þ.e. samþykkja þá tillögu sem hér liggur fyrir af hálfu meiri hlutans. Á Framtíðarlandinu er margt gott að finna sem viðkemur náttúruvernd og hafði ég hugsað mér að lesa aðeins upp úr texta sem ég tel að við hefðum gott af að velta fyrir okkur í ljósi umræðunnar sem hér hefur átt sér stað. Ég vil leyfa mér að vitna í grein sem Gunnar Hersveinn skrifaði og heitir Væntumþykja gagnvart náttúrunni, með leyfi forseta:
„Gildin í lífinu eru dyggðir, tilfinningar og viðhorf sem við lærum og æfum til að verða betra fólk. Gildin í samfélaginu eflum við og styrkjum til að gera samfélagið betra. Við reynum á sama tíma að kveða niður brestina, heimskuna, grimmdina og eyðileggingarmáttinn sem knýr á.
Gildin í náttúrunni felast í því að bæta samband mannverunnar við náttúruna, efla með okkur virðingu og ábyrgðarkennd gagnvart henni.
Segja má að samband mannveru við náttúruna sé í uppnámi um þessar mundir og verkefnið fram undan felist í því að finna jafnvægi og farsæla braut. En hvernig má vinna að því?“
Höfundur greinarinnar fjallar síðan töluvert um siðfræði, bæði okkar mannanna og náttúrunnar og um skilgreinda mælikvarða, rétt eða rangt og góða og ranga hegðun gagnvart náttúrunni og annað og fer svolítið yfir það hvernig við sem mannverur erum hluti af henni og hvernig okkur ber að hugsa að hans mati af virðingu um náttúruna sem auðlind. Hann segir svo, með leyfi forseta:
„Mannskepnan gortar oft af því að vera eina siðræna veran á jörðunni en það er ofsögum sagt því hjá ýmsum dýrahópum má greina siðrænt atferli eins og umhyggju, samkennd, virðingu, ábyrgð, sorg, hópkennd, hjálpsemi og einnig fórnfýsi. Íslendingar ráðstafa ekki landsvæðum undir orkunýtingu einungis af siðrænum ástæðum eða vegna ábyrgðarkenndar heldur af hagrænum ástæðum og vegna búsetuskilyrða.
Voðinn er vís ef strengurinn milli manns og náttúru slitnar og sambandið verður firringu að bráð, ef mannveran setur sig á háan hest og gleymir sér yfir náttúru á korti á teikniborði.
Áhuginn og krafturinn fer oft allur í það að bæta efnahaginn líkt og ekkert annað vegi þyngra í þessum heimi. Okkur hættir stórlega til að ofmeta hagkerfið og vanmeta vistkerfið. Við gerum ráð fyrir hagvexti án endimarka og sköpum okkur líferni án samhengis við náttúruna, líkt og hún sé ekki hluti af okkur. Við fórnum vistkerfi fyrir hagkerfi víða um jörð, vegna þess að það virðist henta okkur um hríð.
Náttúrusvæði á fullnýttu Íslandi flakka nú á milli orkunýtingarflokks, biðflokks og verndarflokks. Við flokkum, leikum okkur og náðum svæði eða nýtum, án virðingar og vinsemdar. Við segjum: „Við náðum þig Neðri-Þjórsá!“ „Við náðum þig Dettifoss — í bili! Þú átt það ekki skilið en það hentar okkur núna, þú varst á dauðalistanum en við náðuðum þig.“ „Við ónáðum þig Urriðafoss og við tökum þig af lífslistanum Dynkur — þú verður ekki lengur til — nema undir okkar stjórn.“
Þessar setningar hljóma undarlega en staðan er jafnvel verri. Tæplega níutíu svæði á Íslandi eru kölluð virkjunarkostir sem mögulega verður þá raskað og nýttir til orkuframleiðslu. Náttúran liggur berskjölduð á teikniborðinu og henni á að raska til og frá — eða ekki, svæði sem voru í verndunarflokki flytjast óvænt í nýtingarflokk og jafnvel svæði í þjóðgörðum — allt eftir duttlungum og hagsmunasamningum.
„Hálendi Íslands, hjarta landsins, er eitt stærsta landsvæði í Evrópu, sunnan heimskautsbaugs, sem hefur aldrei verið numið af mönnum. Sérstaða svæðisins felst í einstakri náttúru, gróðurvinjum, jarðfræði og landmótun, einstöku samspili elds og íss, óviðjafnanlegum andstæðum í landslagi og víðernum sem eru talin meðal síðustu stóru víðerna Evrópu.“ (Landvernd).
Enn eru sterkar líkur á því að alvarleg óafturkræf slys verði gerð í gegndarlausri ásókn í óviðjafnanleg verðmæti sem íslensk náttúru geymir. Af þeim sökum þarf nauðsynlega að efla og rækta gildin í náttúrunni með mannfólkinu. „Efla tengsl fólks við landið, þekkingu og samvinnu landsmanna með auknum almannarétti,“ eins og Guðmundur Páll Ólafsson orðaði það, „að varðveita fegurð fjölbreytileikans í náttúru landsins og vatnafari Íslands.“ (Vatnið í náttúru Íslands.)
Gerum ávallt ráð fyrir harðri baráttu gegn ásókn í náttúruauðlindir.“
Virðulegi forseti. Ég lýk nú tilvitnun minni í þessa grein. Mér fannst þetta ágætur lestur til að fara í gegnum þegar ég hef verið að hlusta á hv. þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu fara yfir málin, til að snúa hugsuninni aðeins á hinn veginn, út úr karpinu og inn á við og gagnvart náttúrunni. Mig langar líka að benda á grein sem fjallar um auðlindina sem Indriði H. Þorláksson skrifar og er að finna inn á Herðubreið, sem er vert að lesa, sem fjallar um hversu miklum tekjum iðnaðurinn skilar. Það er búið að fara hér mikið yfir lögin, minnisblað umhverfis- og auðlindaráðuneytis og annað það sem styrkir mál okkar stjórnarandstæðinga að við teljum, þannig að ég ætla að gerast svolítið ljóðræn í restina af því að mér finnst þetta afskaplega þungbært að þurfa að standa í þessum sporum og berjast um á hæl og hnakka gagnvart ægivaldinu sem vill nýta og nýta allt fram í rauðan dauðann. Þetta er „Aðeins ein jörð“ eftir Ómar Ragnarsson:
Aðeins ein jörð.
Það er ekki um fleiri að ræða.
Takmörkuð er á alla lund
uppspretta lífsins gæða.
Aðeins ein jörð.
Á henni plágur mæða;
rányrkja grimm, sem örbirgð hlýst af
með eyðingu og stríðið skæða,
flóðin, sem byggðir færa í kaf
er fárviðri um löndin næða.
Aðeins ein jörð.
Um hana stormar næða.
Auðlindir þverra ef að þeim er sótt
aðeins til þess að græða.
Aðeins ein jörð.
Afglapasporin hræða.
Lögmálið grimma lemur og slær
og lætur ei að sér hæða:
Ef deyðir þú jörðina deyðir hún þig
og deyjandi mun þér blæða.
Aðeins ein jörð
samt alla mun fæða og klæða
ef um hana standa viljum vörð,
vernda hana og líf hennar glæða, —
elska þessa einu jörð, —
það er ekki um fleiri að ræða.
Þetta er kannski það sem brýst um í hjarta mínu og fleiri þingmanna sem hafa staðið hér í marga daga og við viljum leggja mikið á okkur til þess að vernda náttúruna því hún getur ekki talað fyrir sig sjálf. Það er í okkar hlutverki að gera það og til þess notum við m.a. ræðustól Alþingis.
Það er líka vert að hafa í huga að það er engin þjóð í veröldinni held ég sem framleiðir jafn mikla raforku og við Íslendingar og því spyr maður sig: Hver er þörfin? Við höfum ítrekað spurt tillöguflytjendur hvaða þörf er svo brýn að þeir kostir sem eru nú þegar í nýtingarflokki duga ekki til. Hvað liggur á? Hvað er svo brýnt að það þurfi að fara fram hjá því ferli sem við höfum sett okkur, hvað svo sem okkur þykir um pólitíkina?
Við erum ekki öll hlynnt því að samþykkja Hvammsvirkjun en við lútum ferlinu. Það er það sem skiptir máli. Við í Vinstri grænum hefðum örugglega ef við mættum pólitískt ráða gert hlutina öðruvísi eins og komið hefur fram en við kjósum að lúta ferlinu og því sem út úr því kemur, hvort við styðjum niðurstöðuna eða ekki, það er auðvitað bara okkar pólitíska ákvörðun, en við tökum ekki fram fyrir hendurnar á verkefnisstjórn, fyrstu eða annarri eða þeirri þriðju sem nú starfar og ákveðum eitthvað annað. Menn hafa túlkað með mismunandi hætti hvað er í gildi og hvað er ekki í gildi. Verkefnisstjórnir hafa tímabundnar skyldur og sú sem er að störfum núna og hæstv. ríkisstjórn ber að taka tillit til er ekki búin að skila og því spyr ég aftur: Hvað liggur svo á? Hvaða verkefni eru það sem kalla á að við þurfum nú að virkja?