dagskrá næsta fundar.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni um að það er góður dagur til að ná sátt í þessu máli í dag, en við vitum að við gerum það ekki með atkvæðagreiðslu í þingsal. Við þurfum að setjast niður og ræða málin og finna sáttina. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Það mun ekki gerast með atkvæðagreiðslunni. Það er búið að fullreyna það og það er ekki rétta leiðin.
Við erum búin að tala okkur hás og ganga á okkur blöðrur til að komast hérna upp í púltið dag eftir dag, kvöld eftir kvöld. Allir bera sig vel og segja að þreytan sé ekki farin að segja til sín, en auðvitað er þetta ömurlega leiðinlegt. Þetta er þreytandi og þetta er auðvitað ekki það sem við viljum, ekkert okkar, og ég held að við lengjum bara í því með atkvæðagreiðslum.
Setjumst niður og finnum sáttina, þar er hún.