144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

dagskrá næsta fundar.

[10:27]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Við fordæmalausar kringumstæður í samfélaginu þar sem ófriður ríkir nánast alls staðar, ófriður á vinnumarkaði sem ríkissáttasemjari segist þurfa að teygja sig marga áratugi aftur í tímann til að sjá, höfum við hér á Alþingi Íslendinga möguleika á því að reyna að stilla til friðar, að minnsta kosti hvað varðar okkar eigin fundi og vinnu, í þágu þess markmiðs að Alþingi reyni að minnsta kosti að ganga á undan með góðu fordæmi, að einangra þann vanda sem við blasir sem er forusta ríkisstjórnarinnar og formaður atvinnuveganefndar, stilla saman strengi þeirra sem hafa áhuga á því að hverfa frá þeim átökum sem hér hafa verið uppi í tvær vikur. Í þágu þeirra markmiða er þessi tillaga lögð fram enn eina ferðina vegna þess að við höfum trú á því sem fyrir henni mælum að hér séu fleiri sama sinnis. (Forseti hringir.)

Ég segi já.