dagskrá næsta fundar.
Herra forseti. Það eru alvarlegar deilur uppi í samfélaginu. Ísland stefnir inn í mjög erfitt ástand, tugir þúsunda verða innan skamms í verkföllum. Samfélagið er að lamast, það er að sigla hægt og bítandi inn í upplausn og á sama tíma heyrist hvorki hósti né stuna frá hæstv. ríkisstjórn. Á sama tíma sjást hvorki hæstv. forsætisráðherra né fjármálaráðherra, leiðtogar stjórnarflokkanna, nokkru sinni hér í húsinu. Dag eftir dag skipa þeir pótintátum sínum hér í þinginu að fella tillögu stjórnarandstöðunnar um að taka á dagskrá þau mál sem varða þetta samfélag einhverju. Dag eftir dag ónýta þeir tíma Alþingis og tveir hv. þingmenn, Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, og Páll Jóhann Pálsson, þingmaður Framsóknarflokksins, halda þinginu í gíslingu út af tillögu sem vel er hægt að ná samkomulagi um. En það er ekki vilji til samkomulags.
Þessi ríkisstjórn er ekki lengur hæf til að stjórna þessu landi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) [Háreysti í þingsal.]