dagskrá næsta fundar.
Herra forseti. Ég þekki engin dæmi um þinglok, og man ég þau þó býsna mörg og hef sennilega meiri reynslu en nokkur annar í þessum sal af að glíma við svona aðstæður frá báðum hliðum borðsins á víxl, þar sem stjórn og stjórnarandstaða, meiri hluti og minni hluti, hafa ekki að lokum þurft að tala saman, vinna saman og ná samkomulagi af einhverju tagi.
Þetta mál, hin fáheyrða breytingartillaga meiri hluta atvinnuveganefndar, er ekki gott innlegg í það óumflýjanlega verkefni sem bíður okkar og það er að ná einhverju samkomulagi um þessi þinglok. Hvað sem meiri hlutinn gerir hér með atkvæðum sínum hverfur ekki sá veruleiki. Forseti veit það og allir þingmenn vita það, við munum þurfa að tala saman, vinna saman og leysa úr málum hér til að þingið geti lokið störfum með sómasamlegum hætti. Þeim mun lengur sem það dregst að fara í þessi samtöl, þeim mun erfiðara verður verkefnið og þeim mun rýrari verður uppskeran. Það held ég að meiri hlutinn ætti að hafa í huga.