mæting stjórnarliða.
Herra forseti. Ég verð að lýsa furðu minni á því sem hv. þm. Svandís Svavarsdóttir sagði áðan um mætingu á fundi í morgun. Það er líka vissulega rétt sem hér hefur komið fram að fresta þurfti atkvæðagreiðslu um dagskrártillögu af því að hér voru ekki nægjanlega margir stjórnarþingmenn í húsi. Ég hef líka ítrekað gert athugasemdir við það á kvöldfundum, sem hv. þingmenn meiri hlutans samþykkja hér, að þeir sinna ekki þeim kvöldfundum með mjög aktífum hætti þó að einhverjir hv. þingmenn úr meiri hluta atvinnuveganefndar, sérstaklega, hafi verið viðstaddir umræðuna.
En þetta kemur alltaf að því sama hvað varðar fundarstjórn og störf þingsins, hv. þingmenn meiri hlutans leggja allt á sig til að forðast að ræða stöðuna á vinnumarkaði og ég er ekki hissa, herra forseti, því að hér stefnir í stærstu verkföll Íslandssögunnar. Stjórnvöld virðast standa ráðþrota og það er auðvitað ástæðan fyrir að þau vilja ekki ræða þetta. Það er auðvitað ástæðan fyrir að þau standa hér með tillögu sem ekki er þingtæk, (Forseti hringir.) sem stangast á við skilning manna á lögum um rammaáætlun. Það er ástæðan fyrir því að hér er okkur haldið í umræðum um þau mál, af því að menn leggja ekki í umræðu um stöðuna á vinnumarkaðnum.