144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

mæting stjórnarliða.

[11:20]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Hér stöndum við í leiðindaumræðu út af ólánstillögu meiri hluta atvinnuveganefndar. Ég heyrði í morgun lesið úr dagskrá Ríkisútvarpsins, RÚV, og held að þar sé þáttur þar sem á að ræða við einhverja frá ferðaþjónustunni sem ætlar að spá fyrir um afleiðingu þeirra verkfalla sem standa yfir. Ég held að okkur þingmönnum væri hollara að gera hlé á fundi og hlusta á þennan þátt í Ríkisútvarpinu og endilega senda kveðju til ráðherra og annarra sem ekki treystu sér til að mæta fyrr en þeir voru kallaðir sérstaklega út til að fella tillögu um að ræða einmitt þessi mál í þinginu og biðja þá líka að kveikja á útvarpinu. Ég held að þeim sé hollara — ja, ég veit svei mér ekki, virðulegi forseti, hvað þetta fólk er að gera þessa dagana. Það er að minnsta kosti ekki að hugsa um (Forseti hringir.) farsæld þessarar þjóðar.