144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

sáttatónn í stjórnarliðum.

[12:04]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Ég tek undir þá ósk sem komið hefur fram með beiðni um fund með þingflokksformönnum og vek aftur athygli hæstv. forseta á þeim tón sem kom fram hjá formönnum þingflokka beggja stjórnarflokkanna sem báðar lögðu áherslu á aukna sátt, vísuðu til ástandsins úti í samfélaginu og eins í þinginu. Ég tel að við verðum að hlusta eftir þessum skilaboðum, kalla þingflokksformenn saman og athuga hvort við náum á þeim fundi að færa þetta mál eitthvað áfram. Við erum augljóslega ekki að komast neitt þannig að við verðum að hafa augun og eyrun vel opin gagnvart því sem er að gerast í kringum okkur. Skilaboð eins og þau sem komu fram undir liðnum um störf þingsins er nokkuð sem við verðum að taka með í reikninginn og setjast yfir.