144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

sáttatónn í stjórnarliðum.

[12:17]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vona sannarlega að það vongóða fólk sem hefur talað á undan mér, og hæstv. forseti sjálfur áðan um góða veðrið, að nú væri hæð yfir landinu og tími til sátta, hafi rétt fyrir sér. Til að halda okkur pínulítið á jörðinni tek ég hins vegar undir orð hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur sem segir að verkin þurfi náttúrlega að tala. Það er búið að fara fram á fund í atvinnuveganefnd og ég trúi ekki öðru en að það verði orðið við þeirri beiðni hviss bang, en kannski ekki fyrr en eftir helgi ef kalla þarf verkefnisstjórnina þangað líka. (Forseti hringir.) En ég sem sagt vona að — ég held að klukkan sé biluð.

(Forseti (SJS): Það mun rétt vera.)

Fyrst það er ekki einu sinni barið í mig er ég bara að hugsa um að standa hérna —

(Forseti (SJS): Forseti er umburðarlyndur af þeim ástæðum að klukkan var ekki rétt stillt.)

Klukkan er biluð. Jæja, ég hef lokið máli mínu.

(Forseti (SJS): Hv. þingmaður hefur þegar fengið eina og hálfa mínútu.)