144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

sáttatónn í stjórnarliðum.

[12:18]
Horfa

Páll Jóhann Pálsson (F):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmönnum í salnum, þetta er fallegur og góður dagur. Ég skynja að það sé komin helgi í mannskapinn og fagna því að það liggi vel á fólki.

Ég hef reyndar ekki orðið var við þetta hlaðborð sem verið er að tala um en fagna þó þeim sáttatón sem er kominn í fólk. Það hefur ekki skort á sáttavilja hérna megin hingað til en ég heyri að hann er kominn hinum megin líka.

Ég vara hv. þingmenn við bráðlæti loksins þegar umræður um þetta mál eru farnar að skila einhverjum árangri, eitthvað aðeins að rofa til. Við skulum ekki vera of fljót á okkur heldur halda áfram meðan góðir hlutir eru að gerast, að mér skilst, ég heyri bara á ykkur að eitthvað jákvætt er að gerast. Flýtum okkur hægt, höldum áfram meðan (Forseti hringir.) okkur miðar eitthvað áfram.