breyting á starfsáætlun.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir þessar upplýsingar. Ég hef fullan skilning á því að það þurfi að endurskoða starfsáætlun í ljósi þess að hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa komið afar seint með mál hingað inn og eru alls ekki komnir með öll sín mál sem þeir ætlast til að fá afgreidd. Þegar hæstv. ráðherrar byrjuðu að hóta sumarþingi snemma vors sá maður auðvitað hvert stefndi.
Ég geri athugasemd við það að á meðan hæstv. ráðherrar reyna að haska sér með sín mál hingað inn í þing þá hljótum við þingmenn að gera þá kröfu til hæstv. forseta að hann taki forustu fyrir hönd Alþingis því að þó að eitthvað þurfi að framlengja starfsáætlun er það alveg á hreinu að sú framlenging verður að vera innan einhvers ramma. Við getum ekki gefið ríkisstjórninni og hæstv. ráðherrum opinn tékka með það að þeir geti verið að dedúa við sín mál eins og þeir hafa verið að gera hingað til fram eftir öllu. Við hljótum að gera þá kröfu til hæstv. forseta að hann standi vörð um virðingu Alþingis og að hér verði settur rammi um þessa framlengingu starfsáætlunar, þ.e. tímasetning bæði á eldhúsdegi og hvenær við ljúkum þingstörfum innan þessarar framlengdu starfsáætlunar. Það er hlutverk hæstv. forseta fyrir hönd okkar allra.