144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

breyting á starfsáætlun.

[14:11]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Það er dapurlegt ef við eigum að halda hér áfram með óbreytta dagskrá eins og hefur komið fram. Nefndin á að funda í fyrramálið — og hvað? Er það bara einhver sýndarmennska? Er þá ekkert að gera með þann fund? Það má alla vega skilja það svo að hann hafi enga merkingu ef málið á að vera áfram á dagskrá í dag. Það hljóta að koma einhverjar upplýsingar þar fram sem væri hægt að nýta við umræðuna. Svo má í sjálfu sér skilja það þannig að þegar á að taka mál fyrir á dagskrá nefndar sem er hér til umræðu þá sé búið að kalla það inn. Það er alveg hægt að leggja þann skilning í það, að minnsta kosti finnst mér það. Hæstv. forseti leiðréttir það þá bara ef svo er ekki, ef venjan er að fjalla um mál á þingi á sama tíma og fjallað er um það í nefnd. Ég hef alla vega ekki kynnst því síðan ég byrjaði á þingi en það má vel vera að það hafi verið gert. Ég bið forseta að útskýra fyrir mér hvort það hefur verið venja til þessa.