fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.
Frú forseti. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar forseti tilkynnti áðan að hann hygðist halda hér áfram umræðum um dagskrármál sem á að taka fyrir í hv. atvinnuveganefnd í fyrramálið. (JónG: Það er búið að fresta þeim fundi.) (Gripið fram í: Ha, er búið að fresta þeim fundi?) (JónG: … bara svona það sem sagt er. …) Forseti fer væntanlega yfir það með okkur. Ég heyri að hv. þm. Jón Gunnarsson, sem virðist fara með dagskrárvaldið í þinginu þessa dagana, tilkynnir hér úr sæti sínu einhverjar breytingar á dagskrá þingsins. Það væri þó óskandi, forseti, að þau skilaboð kæmu úr forsetastóli en ekki frá hv. þm. Jóni Gunnarssyni sem hefur greinilega tekið öll völd í þinginu.