fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni, ég held að það væri rétt að forseti þingsins sæti á forsetastóli núna en setti ekki varamann í sinn stað þegar allt er hér að fara í upplausn.
Hann tekur af okkur málfrelsið, klukkan 20 mínútur yfir tvö segir hann allt í einu bara: Fundi er frestað, af því að hann þolir ekki hitann sem hérna er inni vegna þess að hann áttar sig á því að hann er að bregðast þeirri skyldu sinni að standa vörð um Alþingi Íslendinga gagnvart ómögulegum forustumönnum þessarar ríkisstjórnar sem geta ekki neitt. Þeir eru búnir að stöðva þingið, þjóðin mun öll stöðvast eftir fimm eða tíu daga. Fólk er næstum því í lífshættu á Landspítalanum vegna þess að þeir geta ekki leyst verkföll þar. Þeir sem stjórna Landspítalanum eru á tánum vegna þess að þeir geta ekki leyst kjaradeilur við ríkisstarfsmenn. (Forseti hringir.) Hvar eru þessir menn? (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Og hvar er forseti þingsins? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)