144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.

[15:06]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég kem aftur hingað til að viðra áhyggjur mína af því að ég eigi að taka til máls þegar óljóst er um framvindu málsins. Ég bið hæstv. forseta að virða það að mér finnst það ekki góð framkoma við mig sem þingmann að ég viti ekki inn í hvaða mál ég á að tala.

Varðandi breytingu á starfsáætlun er það mín reynsla á þeim fáu árum sem ég hef setið hér að þó að þing væri lengt hefur verið haldið við eldhúsdag. Kannski er búið að kippa starfsáætlun úr sambandi af því að 27. maí næstkomandi átti að vera eldhúsdagur. Það er dagurinn sem hjúkrunarfræðingar ætla að byrja í verkfalli hafi ekki samist við þær. Kannski þorir ríkisstjórnin ekki að vera hér á kvöldfundi við þær aðstæður. Það má vel vera, en þá legg ég til að hún ræði við okkur alvarleika stöðunnar á vinnumarkaði í stað þess að sýna ótta sinn með því að taka (Forseti hringir.) starfsáætlun þingsins úr sambandi.