fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.
Virðulegi forseti. Mér þætti vænt um að fá smáverðmætamat frá virðulegum forseta um það hversu mikils hann virðir tíma Alþingis. Ef þetta mál eitt og sér, hvernig svo sem menn vilja kenna hver öðrum um það, hefur gert það að verkum að við höfum enga starfsáætlun og vitum ekkert hvenær eldshúsdagur verður verð ég að spyrja virðulegan forseta: Hvað er nóg? Hvenær ætlar virðulegur forseti að íhuga þann kost að bíða einfaldlega með að setja málið á dagskrá þar til búið er að ræða það í nefnd og finna út einhverja sátt um það hvernig eigi að halda áfram? Núna höfum við beðið um þetta í tvær vikur. Meiri hlutinn hefur gert lítið annað en að kvarta undan því að við biðjum um þetta. Hvað er nóg, virðulegi forseti? Hvað ef við verðum hér fram í september? Mundi þá virðulegi forseti endurhugsa málin? Hvað þarf, virðulegi forseti? Hvað er nóg? (Forseti hringir.) Hvenær fær virðulegur forseti nóg?