fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.
Hæstv. forseti. Ég hef vissan skilning á stöðu forseta þingsins og vissa samúð líka. Það er örugglega ekkert rosalega skemmtilegt að þurfa að standa í þessu með ríkisstjórnina á bakinu. En mig langar til að benda fólki á að kalla ekki hvert annað ofbeldismenn og ofstopamenn þrátt fyrir að okkur sé heitt í hamsi. Ég held að þessir ágætu herrar í atvinnuveganefnd séu ekki þannig gerðir þó að þeir séu þverari en allt sem ég hef nokkurn tímann kynnst. Þeir hljóta að hugsa það núna í hvað stöðu þeir eru búnir að koma okkur og þinginu. Það er til ótrúlega auðveld lausn á þessari deilu, sú að hv. formaður atvinnuveganefndar og meiri hluti hans dragi bara þessa tillögu til baka og láti málið ganga sinn gang. Það mundi skapa frið hér inni og í samfélaginu og við gætum farið saman allir austur fyrir fjall og talað við ábúendur jarða á bökkum Þjórsár og hlustað á þeirra sjónarmið. Það á að fara að sökkva jörðum þeirra í kaf.