144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.

[15:30]
Horfa

Óttarr Proppé (Bf):

Virðulegi forseti. Ég er á svipuðum nótum og sá þingmaður sem tók til máls á undan mér. Það hefur oft komið fyrir að maður hafi fengið aðeins í magann í þessum sal eða haft áhyggjur af ástandinu en sjaldan sem nú og það leita á mig ljóðlínur eftir Valgeir Guðjónsson. Með leyfi forseta:

Hver getur læknað kramið hjarta,

hver getur límt saman brotna sál,

hver getur stutt við stoltið særða,

hver getur læknað kramið hjarta?

Ég fæ það á tilfinninguna að að minnsta kosti í þeim þingmanni sem hér stendur sé hjartað að kremjast. Ég held að það sé ljóst að verkefni og ábyrgð Alþingis sé slík að við getum ekki leyft okkur að sitja hér með kramið hjarta. Það hlýtur að vera á okkar ábyrgð að finna leið út úr þessu. Það er engin mamma á leiðinni til að redda okkur þannig að ég hvet okkur til þess að ná gleði í hjörtu okkar aftur.