fyrirkomulag náms til stúdentsprófs.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og öðrum þeim sem hafa tekið hér þátt. Þetta er rosalega stuttur tími til að ræða svona mikilvæg mál. Í orðum ráðherra kom fram að hann hefði áhyggjur af brottfalli og að allt of fáir færu í verknám. Við höfum heyrt áhyggjur í blaðaviðtölum og rannsóknum gagnvart þeim nemendum sem standa veikt. Ég spyr hæstv. ráðherra: Er svarið þá að auka einsleitni skólanna? Ég varð ekki vör við mikla umræðu hjá hæstv. ráðherra um inntak námsins og áhyggjur af því að það væri verið að draga úr inntakinu eða takmarka þar val og ég vil fá konkret svar við spurningunni: Af hverju má Menntaskólinn í Reykjavík ekki halda sinni sérstöðu? Af hverju vill ráðherrann banna það? Ég hef ekki fengið neitt svar annað en einhver almenn orð um að það gangi ekki. Það finnst mér dálítið gamaldags hugsun.
Ég vil líka nefna skil skólastiganna, grunnskólans, framhaldsskólans og háskólastigsins, rannsókn Gerðar G. Óskarsdóttur á þeim og mikilvægi þess að eiga samtal við bæði skólastigin sem eru hvort sínum megin við viðkomandi skólastig, þ.e. við grunnskólastigið og sveitarfélögin þar með og við háskólastigið. Allar svona grundvallarbreytingar hafa áhrif á aðliggjandi skólastig. Hvaða heildarsýn hefur hæstv. ráðherra í þeim efnum? Ég verð ekki vör við að þetta sé í samræmi við það.
Hæstv. ráðherra spurði hvort ég gæti sýnt fram á staðhæfingu um ólögmæti aðgerða í lögfræðiálitinu um sameiningu skólanna í Hafnarfirði en ég vil spyrja hæstv. ráðherra á móti: Er hann sannfærður um að það sé lagastoð fyrir þessum breytingum, þ.e. einhliða styttingu náms í framhaldsskólanum með tilskipun? Í lögskýringargögnum við framhaldsskólafrumvarpið frá 2008 kom fram að meiri hlutinn áréttaði mikilvægi þess að nám til stúdentsprófs (Forseti hringir.) væri ekki skert með því frumvarpi og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem þá var ráðherra, talaði sérstaklega um að skólarnir yrðu ekki skikkaðir til breytinga, en það er nákvæmlega það sem núverandi hæstv. ráðherra er að gera.