áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Hæstv. forseti. Jú, ég tek undir að það væri sannarlega U-beygja og það sem er alvarlegt við það varðar leikreglurnar sem voru samþykktar í kjölfar áratugavinnu á síðasta kjörtímabili með öllum greiddum atkvæðum þegar við settum lög um rammaáætlun, þar sameinuðumst við um leikreglur. Nú er verið að fara aftur inn á þá braut að búa til stríð um hvern og einn virkjunarkost. En það sem verra er, ekki er bara verið að snúa aftur í það heldur er það gert undir því yfirskyni að þetta sé í samræmi við leikreglur. Það er eiginlega enn óskammfeilnara. Ég tek undir með hv. þingmanni með það að mig óar við því ef þessi tillaga, sem við höfum reyndar einsett okkur að fari ekki í gegn, færi í gegn því þá er verið að setja okkur á verri stað en við vorum áður en rammalöggjöfin var samþykkt.