144. löggjafarþing — 112. fundur,  26. maí 2015.

kostnaður við nýtt húsnæðisbótakerfi.

[14:03]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Herra forseti. Þau skrýtnu tíðindi hafa orðið að fjölmiðlar hafa undir höndum kostnaðarmat fjármála- og efnahagsráðuneytisins á frumvarpi hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra um húsnæðisbótakerfi. Samkvæmt fregnum fjölmiðla hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið gert veigamiklar athugasemdir við frumvarp hæstv. ráðherra, meðal annars að frumvarpið, verði það að lögum, muni fyrst og fremst gagnast tekjuhærri fjölskyldum en ekki hinum tekjulægri, sem er þó hinn yfirlýsti tilgangur hæstv. ráðherra sem hún hefur lýst bæði hér á þingi og annars staðar. Hins vegar eru gerðar athugasemdir samkvæmt fréttum fjölmiðla við frumvarpið um að endurskoða þurfi lög um tekjustofna sveitarfélaga eða gera breytingar á viðbótargreiðslum ríkisins í jöfnunarsjóð til þess að frumvarpið megi verða að lögum.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, sem átti hér ágæta umræðu um sjónarmið sín í húsnæðismálum í síðustu viku í sérstakri umræðu, hvort hún sé sammála þeim sjónarmiðum sem við heyrum af í kostnaðarmati fjármála- og efnahagsráðuneytisins, þ.e. sammála því að frumvarpið nái ekki sínu yfirlýsta markmiði, og að þess vegna sé verið að vinna áfram í frumvarpinu. Er verið að vinna áfram í frumvarpinu til að koma til móts við athugasemdir af þessum toga? Ef hæstv. ráðherra er ekki sammála þessum athugasemdum, eigum við þá von á því að sjá frumvarpið í þinginu núna í vor þannig að við, hv. þingmenn, getum áttað okkur betur á því hvað felst í frumvarpinu eða eigum við von á því að það verði áfram í vinnslu og við munum hugsanlega ekki sjá það fyrr en á næsta þingi? Ef marka má þessar fréttir fjölmiðla, og nú getur hæstv. ráðherra nýtt hér tækifærið og leiðrétt það ef það er ekki rétt með farið að þetta séu athugasemdir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu við þetta frumvarp, eigum við þá við von á því að sjá frumvarpið (Forseti hringir.) í óbreyttri mynd hér á þinginu?