144. löggjafarþing — 112. fundur,  26. maí 2015.

Hvammsvirkjun.

[14:12]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Eins og kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda þá er málaflokkurinn ekki lengur í mínum höndum. Það er rétt hjá fyrirspyrjanda að í haust þegar málið kom inn í þingið lagði ég til að einn kostur, sem verkefnisstjórnin lagði til að yrði fluttur í nýtingarflokk, yrði jafnframt sá hluti af þingsályktunartillögunni sem sá ráðherra flutti. Ástæðan er sú að lagaramminn í kringum það hvernig framkvæmdarvaldið getur hagað sér er nokkuð skýr eins og menn þekkja og til þess að ráðherra gerði breytingar á því hefði þurft að leggja til einhverja breytingu eftir athugun í ráðuneytinu, ný gögn sem sannarlega hafa komið fram síðan og fleiri kosti. Það var valkostur. Þá þarf það jafnframt að fara í 12 vikna umsagnarferli þannig að mín skoðun og afstaða þá og hún hefur ekkert breyst var sú að lögin hvað varðar verklag framkvæmdarvaldsins séu mjög skýr. Ég taldi að það væri mikilvægara að fá málið inn í þingið en að bíða eftir þessu 12 vikna umsagnarferli og fá málið kannski fyrst núna inn í þingið.

Hins vegar er lagaramminn er varðar meðferð þingsins allt annar. Þar eru jú fyrst og fremst þingsköp og þingið getur auðvitað tekið þær ákvarðanir sem það nánast vill eins og við þekkjum og gerir í ótal málum. Þess vegna hef ég ekki gert neinar athugasemdir við það að þingnefndin sem slík leggi til fleiri kosti enda hafi hún til þess upplýsingar, sem hún hefur þá meðal annars aflað á nefndafundum og með umsögnum, um að það sé ekkert að því að leggja til fleiri kosti. Það hafa komið fram nýjar upplýsingar, (Forseti hringir.) bæði frá virkjunarhöfum og frá ýmsum umsagnaraðilum, (Forseti hringir.) sem styrkja þá vegferð (Forseti hringir.) þingnefndarinnar.