áframhald umræðu um rammaáætlun.
Virðulegur forseti. Grenjandi andstaða, segir hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Já, við erum í grenjandi andstöðu við þá sem vilja ekki virkja meira og hafa sagt það, og það er alveg sjónarmið út af fyrir sig. Hv. þingmenn Vinstri grænna segja hér að búið sé að virkja of mikið í landinu og eru sammála Landvernd og Árna Finnssyni hjá Náttúruverndarsamtökum Íslands. Við erum í grenjandi andstöðu við þetta fólk vegna þess að við viljum halda áfram uppbyggingu í orkufrekum iðnaði. Við náum aldrei saman um niðurstöðu á þessum nótum.
Menn verða að átta sig á því að þau verkefni sem hér eru undir eru mjög mikilvæg íslensku samfélagi; norðvesturkjördæmi uppi á Grundartanga, Suðurkjördæmi á Suðurnesjum og landinu öllu. Það tekur þrjú ár að reisa virkjun eftir að við förum með hana í nýtingarflokk sem þó er kominn nokkuð vel á veg, þannig að þetta tekur langan tíma. (SJS: Stærsta atvinnugrein landsins, skiptir hún engu máli?) Hv. þm. Svandís Svavarsdóttir kom í veg fyrir að virkjanirnar í neðri hluta Þjórsár væru gangsettar á þessu og næsta ári eins og áform stóðu upphaflega til með því að brjóta lög og var dæmd fyrir það í Hæstarétti. (Gripið fram í.) Hún svaraði því til á þeim tíma að henni kæmi það (Forseti hringir.) bara ekkert við hvort hún hefði brotið lög og verið dæmd fyrir það í Hæstarétti, hún væri í pólitík til verndar náttúrunni. (Gripið fram í.)
Ég óska eftir því að við höfum umræðuna(Forseti hringir.) eins og hún stendur um staðreyndir máls. Þessi verkefni eru undir. Þegar talað er um grátt svæði er (Forseti hringir.) það mat formanns verkefnisstjórnar að Skrokkalda sé á gráu svæði vegna þess hvernig lögin eru orðuð, en umhverfisráðuneytið sagði (Forseti hringir.) að það væri mjög óljóst hvernig ætti að lesa í þau lög, lögfræðingar þar.