áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Var það ekki Don Kíkóti sem barðist við vindmyllur? Jón Gunnarsson er farinn að minna á Don Kíkóta, hann er í eilífri baráttu við vindmyllur og kemst ekkert áfram. Það er nú bara þannig. Talandi um vindmyllur — er það ekki eitt af því sem við ættum kannski að horfa til, og Landsvirkjun hefur verið að horfa til, að byggja upp vindmyllur á Hafinu? Væri ekki bara rétt að hv. þm. Jón Gunnarsson og fleiri fylgisveinar hans mundu horfa til þess?
Það var líka ágætt að það kom fram hjá fulltrúum Landsvirkjunar að Landsvirkjun er ekki að biðja um að farin sé skemmri skírn í þessu máli. Hún vill virða lögformlegan feril rammaáætlunar. Þeir vita hvað það getur kostað í seinkun (Forseti hringir.) framkvæmda og öllu ferlinu ef menn fara skemmri skírn í þessu eins og meiri hluti hv. þingmanna ætlar að gera.