áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Það kom alveg skýrt fram, það þýðir ekki fyrir hv. þingmann að reyna að koma með sértúlkun á því, hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu í morgun að þeir telja skýra lagastoð fyrir því að þingið geti fært þessa virkjunarkosti í neðri hluta Þjórsár milli flokka, rétt eins og ráðherrann áður en hann lagði málið fyrir þingið. Við skulum hafa það á tæru.
Hv. þingmaður talar um ferðamenn, að 80% ferðamanna komi til að skoða náttúruna. Hver er skýringin á því að Grindavík er einn stærsti ferðamannastaður landsins í dag? Telur hv. þingmaður að Grindavík væri stærsti ferðamannastaður í dag ef ekki hefði komið virkjun í Svartsengi hjá framsýnum heimamönnum (Forseti hringir.) með tilheyrandi látum? Er það ekki til marks um (Forseti hringir.) að hægt er að nýta virkjanir á ýmsan hátt til þess að trekkja að ferðamenn?