144. löggjafarþing — 112. fundur,  26. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[16:54]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:

„Við undirrituð gerum það að tillögu okkar, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga, að dagskrá næsta fundar verði svohljóðandi:

1. Störf þingsins.

2. Staðan á vinnumarkaði, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

3. Raforkulög, stjórnarfrumvarp, 305. mál, þskj. 1005, nefndarálit á þskj. 1091 og 1226, breytingartillaga á þskj. 1092 og 1227, 3. umr.

4. Stefna stjórnvalda um lagningu raflína, stjórnartillaga, 321. mál, þskj. 392, nefndarálit á þskj. 973 og 986, framhaldsnefndarálit á þskj. 1228, framhald síðari umr.

Við óskum eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“

Undir þetta bréf rita Jón Þór Ólafsson, Katrín Júlíusdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Björt Ólafsdóttir. Þessi tillaga verður borin upp í upphafi þingfundar á morgun.