144. löggjafarþing — 112. fundur,  26. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[17:16]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Hér er allt í hnút og fólk spyr mig hvað sé í gangi á þingi og ég get varla svarað því. Það er erfitt að útskýra þetta. Svo erum við stundum að bera okkur saman við önnur lönd og komum kannski ekki vel út úr þeim samanburði ef við skoðum þingstörfin. En það er þannig, leyfi ég mér að fullyrða, í þeim löndum sem við berum okkur saman við að þar semja menn um mál fyrir fram, menn setja ekki einhver sprengimál á dagskrá. Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum ekki að fá forseta danska þingsins eða sænska þingsins hingað til lands til þess að hjálpa okkur, því að þetta er okkur hreinlega um megn. Það er alveg hræðilegt. Þegar staðan er þannig að menn ræða ekki saman og stjórnvöld og meiri hlutinn rétta ekki fram sáttarhönd, ekki einu sinni litla fingur, hvað eigum við þá að gera? Manni fallast hendur. (Forseti hringir.) Ég legg það til að við splæsum í flugferð fyrir (Forseti hringir.) forseta sænska þingsins.