144. löggjafarþing — 112. fundur,  26. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[17:21]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ef við fáum Mogens Lykketoft sem ég trúi að sé enn forseti danska þingsins til að koma hér og reyna að miðla málum eins og hv. þm. Brynhildur Pétursdóttir stakk upp á þá gætu þeir kannski farið út á móti með sömu flugvél, hæstv. forsætisráðherra og hv. formaður atvinnuveganefndar Jón Gunnarsson. Alvöruforsætisráðherra væri hér í þinghúsinu þessa daga. Hann væri að reyna að miðla málum. Hann væri að reyna að semja fyrir hönd sinnar ríkisstjórnar um framgang mikilvægra stjórnarmálefna. En er hann hér? Nei, hann er kannski farinn í felur aftur í „bunkerinn“ eftir fjölmiðlaúthlaup helgarinnar. Það getur vel verið. Alla vega verðum við ekki vör við hann.

Hvernig heldur ríkisstjórn að svona hlutir gangi fyrir sig þegar komið er að vordögum og þarf að fara að ná utan um afgreiðslu mála á þingi? Með því að fela sig? Með því að vera í burtu? Með því að henda ónotum og skít í stjórnarandstöðuna og þjóðina í leiðinni? Það gerist ekki þannig. Það voru athyglisverðar upplýsingar sem formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins læddi hér inn í umræðuna að það biðu 25 stjórnarfrumvörp og 10 tillögur tilbúin. Var hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttur kannski að læða inn spurningunni: Er þetta mikilvægara en allt annað sem ríkisstjórnin er að gera? Er málatilbúnaður hv. þm. Jóns Gunnarssonar það eina sem skiptir þessa ríkisstjórn máli? (Forseti hringir.) Má allt hitt mæta afgangi? Kannski var formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins að spyrja að því.