144. löggjafarþing — 112. fundur,  26. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[17:30]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég kem hingað til að taka undir með hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur þar sem hún mótmælir því að þetta skuli halda hér áfram, þ.e. þessi fundarstjórn. Þetta er ótrúlega sorglegt og sorglegur tími í sögu þingsins. Ég hef alla tíð eftir að ég varð þingmaður fyrir tveimur árum hvatt ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, hæstv. forsætisráðherra, til þess að virkja samráð við þjóðina, tala við þjóðina og virkja samtalið hérna inni í þinginu meira. Það hefur aldrei verið hlustað á það. Ég man eftir að í stefnuræðunni haustið 2013 óskaði ég ríkisstjórn hans alls hins besta og hins besta í störfum og vonaði það svo innilega að hún tæki það til greina að hún væri ríkisstjórn alls landsins, hún væri ekki ríkisstjórn fyrir bara einhverja fáa. Því miður virðist það vera að koma í ljós að hún er bara ríkisstjórn fyrir einhverja fáa og er algjörlega að hunsa vilja stórs hluta þjóðarinnar. Við sjáum það bara hérna úti á Austurvelli núna. Það er kannski óhætt að óska henni til hamingju fyrir að hafa náð að draga þetta fólk hingað út á þessum fallega degi.