áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög góð spurning. Þarna erum við í raun að tala um tvennt: Við erum annars vegar að tala um náttúruverndarsjónarmiðin í grunninn. Ég er orðin þeirrar skoðunar núna að nóg sé að gert. Ég er þeirrar skoðunar að við séum búin að virkja nóg í bili. Ég er þeirrar skoðunar að núlifandi kynslóð hafi engan rétt á því að ráðstafa öllu mögulegu virkjanlegu afli. Af hverju ættum við að gera það en ekki fólk sem er fætt 2040 eða 2080? Mér finnst því nóg að gert. En hins vegar finnst mér gríðarlega mikilvægt þegar náðst hefur þverpólitísk samstaða um einhvers konar ferli og einhvers konar tæki, vettvang, vettvang til þess að leiða mál til lykta gætum við að því að spilla ekki því tæki. Ég er ekki endilega sammála þeirri niðurstöðu sem tækið leggur til. Ég var til dæmis ekki sammála því þegar Eldvörp voru sett í nýtingarflokk í janúar 2013 og ég efast um að hv. þingmaður hafi verið sammála því heldur. En við vorum hins vegar þeirrar skoðunar að verkfærið væri það dýrmætt að það bæri að fara að leiðsögn þess og þess vegna var niðurstaðan sú sem hún varð.