144. löggjafarþing — 112. fundur,  26. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:28]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Nú hafa menn falið sig á bak við það í umræðunni að það lægi svo mikið á að virkja vegna þess hve margir orkukaupendur væru í biðröð og þyrftu á orku að halda. En fram kom líka í morgun á fundi atvinnuveganefndar að Landsvirkjun er ekki með neina skuldbindandi samninga á borðinu. Það eru vissulega fjögur kísilver inni í myndinni og tvö þeirra eru ekki með neina samninga. Eitt þeirra hefur fengið samning um ¼ af því sem það þarf á að halda og kísilver á Bakka er með orku frá Þeistareykjavirkjun.

Mig langar að spyrja hv. þingmann út í það hvort við eigum að fara að horfa til svona hluta inni í sviðsmynd til að pressa á virkjun eins og áburðarverksmiðju upp á 350 megavött og álver í Helguvík upp á 625 megavött.