áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Að mér vitandi þá liggur ekkert á þessu, jafnvel út frá þeim forsendum. Að því sögðu, ég er ekki í hv. atvinnuveganefnd heldur kollegi minn og flokksbróðir Jón Þór Ólafsson, hv. 10. þm. Reykv. s., sem vissulega var á fundinum í morgun. Ég hefði kannski viljað fara betur út í þessa sálma ef ég hefði verið á þeim fundi.
Hins vegar hvað varðar allar þær spurningar um hversu mikla orku við þurfum þá hlýtur það að vera eitthvað sem við getum gefið okkur, alla vega í því tómarúmi sem við mundum fá ef þetta mál væri ekki á dagskrá í þessum búningi hér og nú. Við ættum alveg að geta afgreitt Hvammsvirkjun eina og sér þrátt fyrir þessar áhyggjur og rætt þá málefnalega út frá þeim forsendum frekar en að henda hingað inn fullt af aukakostum sem hafa ekki fengið umfjöllun í 3. áfanga rammaáætlunar, sem þar af leiðandi veldur öllum þessum mótbyr og öllum þessum deilum.
Núna förum við inn í þriðju viku ræðandi um formið á þessu og hvernig við ætlum að reyna að hafa þessi mál í skikkanlegri sátt til framtíðar í stað þess að ræða efnisleg atriði eins og þessi, sem við gætum gert ef tillaga hæstv. ráðherra væri ein og sér hér til umfjöllunar, sem hún er því miður ekki.