144. löggjafarþing — 112. fundur,  26. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:42]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég er að velta fyrir mér af hverju þessum dagskrárlið er ekki frestað svo að við getum rætt öll brýnu málin sem okkur er sagt að bíði. Það væri kannski gott að fá einhverja úr stjórnarliðinu til að koma hingað upp í ræðustól undir liðnum um fundarstjórn forseta og útskýra fyrir okkur af hverju við setjum ekki þennan málaflokk til hliðar, tökum hann út af dagskránni. Þetta er ekkert sem skiptir máli hér og nú. Það eru brýn mál sem við ættum að vera að ræða. Ég mundi vilja fá útskýringar frá meiri hlutanum. Við erum að bjóða að við ræðum þetta mál síðar. Við getum rætt það í sumar ef það er einhver stemning fyrir því. Það er fullt af brýnum málum sem við viljum setja á dagskrá núna. Af hverju gerum við það ekki? Það er óskiljanlegt.