raforkulög.
Herra forseti. Það fer allt eftir aðstæðum hverju sinni. Stundum er alveg réttlætanlegt að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. En við verðum alltaf að gera okkur grein fyrir því hvað við erum að samþykkja og hvað það getur falið í sér.
Ég er þeirrar skoðunar að meginhagsmunirnir í því máli sem nú er búið að slá af, a.m.k. tímabundið, séu hinir sömu og hérna. Það er hálendið. Ég tel að deilan um rammaáætlun hafi ekki staðið fyrst og fremst, alla vega ekki frá mínum bæjardyrum séð, um virkjanir í neðri hluta Þjórsár heldur um hálendið, vegna þess að þar er verið að hefja ákveðna ferð.
Það sem ég er að velta fyrir mér um þetta frumvarp, þótt ég sé ekki fjarri viðhorfum hv. þingmanns, er sú sviðsmynd að menn vilji fara í Sprengisandslínu og menn taki ákvörðun um það án þess að farið sé í þá umræðu sem ég tel að þurfi að fara í meðal þjóðarinnar um það hvernig menn vilja nálgast hálendið. Þetta er partur af því. Það getur vel verið að þjóðin vilji Sprengisandslínu, með vegi yfir Sprengisand, eftir einhverja umræðu. Ég dreg það í efa. Ég held að hún sé að fjarlægjast það. En hugmyndirnar eru komnar fram í fullri alvöru, í fyrsta skipti á síðustu 25 árum er flutningsfyrirtæki farið að tala um það sem nálægan kost. Þá verðum við að ræða það. Þá verðum við að gera okkur grein fyrir því að það er vel hugsanlegt að með samþykkt þessa frumvarps séum við að selja frá okkur öll vopn, eða frá þeim sem vildu andæfa því.
Ég sé ekki að þegar búið er að samþykkja þetta frumvarp sé nokkur leið til þess að stöðva það, jafnvel þótt þjóðin vilji. Það er þetta sem mér finnst að við þurfum að velta vel fyrir okkur. Þetta var það sem ég og fleiri veltum upp við 2. umr. og nú erum við komin í upphaf 3. umr. svo það er kannski ekki mikill tími. En þetta er kjarni máls.