raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Gerðar voru margháttaðar breytingar á frumvarpinu í meðförum nefndarinnar, sem urðu meðal annars til þess að fulltrúi Bjartrar framtíðar í atvinnuveganefnd ákvað að vera með á meirihlutaáliti. Þær breytingar sem gerðar voru fela fyrst og síðast í sér það mikilvæga atriði sem snertir aðkomu þingsins að áætlunum sem eru gerðar þannig að alveg er tryggt að ekki sé hægt að taka ákvarðanir um umdeildar línuleiðir, t.d. um Sprengisandslínu, án þess að aðkoma lýðræðislegra kjörinna fulltrúa á þingi yrði tryggð. Þetta er gríðarlega mikilvæg forsenda að mati Bjartrar framtíðar, auk annarra breytinga sem gerðar hafa verið á þessu máli; þetta sérstaklega og svo sú staðreynd að einhvers konar valkostagreining þurfi að koma til áður en lengra er haldið.
Mig langaði til að spyrja hv. þingmann út í þetta tiltekna atriði, hvort hún líti svo á að þetta sé nægilega í gadda slegið með þeim breytingum sem gerðar hafa verið. Það er það hvað Bjarta framtíð varðar og okkar fulltrúa í atvinnuveganefnd en þetta er atriði sem mér finnst skipta máli að sátt sé um og menn séu algerlega á sömu blaðsíðu, allir. Ég held nefnilega að það sé í raun furðulegt að við séum að ræða það á annan hátt en þann að það sé alveg sjálfsagt að menn ætli að halda miðhálendi Íslands og óspilltum víðernum lausum við raflagnir og hafa að minnsta kosti, ef slíkar ákvarðanir eru teknar, undirbyggt slíkar ákvarðanir með mjög víðtæku lýðræðislegu samkomulagi.