raforkulög.
Herra forseti. Ég þakka fyrir að fá orðið aðeins of snemma, vona að það verði ekki til skaða fyrir mína andagift að komast aðeins of snemma að.
Ég vil taka undir það sem kemur fram í nefndaráliti minni hluta atvinnuveganefndar sem hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar undir og hún fór yfir í ræðu sinni áðan að vissulega eru þær breytingar sem hafa verið gerðar á frumvarpinu hingað til til bóta, svo það sé sagt. Ég vil segja að umræðan í þinginu skiptir auðvitað máli og kemur á daginn að hún getur vissulega skilað umbótum í málum á borð við þetta. Hér eru lagðar til ýmsar breytingartillögur af hálfu meiri hlutans í atvinnuveganefnd sem flestar eru til bóta. Eitt af því sem hefur verið sérstaklega verið rætt hér er aðkoma þingsins, þ.e. að hún verði í gegnum tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku sem skuli fyrst lögð fyrir Alþingi eigi síðar en 15. október 2016. Fleira hefur verið gert og reynt er til að mynda að koma umhverfissjónarmiðum sterkar inn, en ég tek hins vegar undir með hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur um að þar hefði mátt kveða enn þá sterkara að orði því eins og hún kom svo ágætlega inn á í ræðu sinni þá eru umhverfismálin stærsta málið þegar við ræðum um orkumál því þá fjöllum við um flutningskerfið um land allt og þar hljóta umhverfismálin að vega gríðarlega þungt við allar ákvarðanir.
Síðan er það aðkoma sveitarfélaga. Það er auðvitað umhugsunarefni að í þeim breytingum sem hafa verið gerðar á málinu felast ekki enn þá úrræði fyrir sveitarstjórnir sem eru ósáttar við landnotkun innan síns sveitarfélags samkvæmt kerfisáætlun. Þeim er vissulega gefinn meiri frestur til að aðlaga sitt skipulag að ákvörðunum flutningsfyrirtækisins, þ.e. Landsnets. Þarna er auðvitað verið að ganga á skipulagsvald sveitarfélaga. Nú er hægt að spyrja: Er skipulagsvald sveitarfélaga heilagra en annað vald? Það hefur að minnsta kosti hingað til verið talið ansi heilagt í ljósi ákvæðis um sjálfstæði sveitarfélaga í stjórnarskrá landsins. Þá verðum við líka að velta fyrir okkur: Hvernig er verið að ganga á þetta vald? Það sem ég hef mestar áhyggjur af í öllu þessu máli er að lýðræðisleg vinnubrögð séu ekki nægjanlega uppi í öllu þessu máli. Þá er ég að vitna til þeirrar ofursterku stöðu flutningsfyrirtækisins, sem vissulega mun þurfa að taka tillit til stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku en getur samkvæmt þessu frumvarpi, verði það að lögum, tekið ákvarðanir þvert á vilja sveitarfélaga og aðkoma almennings að þeim ákvörðunum er óljós, getum við sagt, nema þá í gegnum umræðu á Alþingi um stefnu stjórnvalda í lagningu raflína.
Ég velti einu fyrir mér í þessu sambandi en það eru þjóðaratkvæðagreiðslur, því það er eitt af því sem við höfum rætt talsvert í þessum sal og tengist umræðu sem hefur átt sér stað í stjórnarskrárnefnd sem nú starfar, um hvað slíkar atkvæðagreiðslur eigi að vera og hvernig eigi að standa að þeim. Almenn hugmynd manna um þjóðaratkvæðagreiðslur er að tiltekinn hluti landsmanna geti krafist atkvæðagreiðslu um samþykkt lagafrumvörp á Alþingi, það er sú hefðbundna hugmynd sem við höfum. Það er sá réttur sem felst í málskotsrétti forseta Íslands samkvæmt gildandi stjórnarskrá og flestir hafa þá hugmynd að rétt sé að þjóðin fái þann rétt með einum eða öðrum hætti til sín, þ.e. tiltekinn hluti þjóðarinnar geti krafist atkvæðagreiðslu um þessi mál.
En segjum sem svo að flutningsfyrirtæki í þessu tilfelli vilji leggja línu yfir Sprengisand af því að hana hefur borið á góma nú þegar í ræðum hv. þingmanna um þetta mál. Þar geta sveitarfélögin ekki stoppað málið. Þau eru á sitt hvorum enda en geta í mesta lagið fengið frest til að aðlaga skipulags sitt. Alþingi getur fengið málið til umræðu og það hefur verið rætt hér en við vitum líka að þingsályktanir og gildi þeirra hafa verið talsvert umdeildar, bara síðast í vetur hér á Alþingi og nægir þar að minna á mikla umræðu um gildi þingsályktunar í tengslum við Evrópusambandsmálið stóra og mikla. Þar erum við með lögfræðiálit sem beinlínis segir að þingsályktanir hafi bara X-gildi, þ.e. takmarkað gildi. Við sjáum það auðvitað í samgönguáætlun sem raunar hefur enn ekki verið lögð fram en núna hefur ríkisstjórnin tilkynnt að hún hafi samþykkt tilteknar fjárhæðir í tiltekin vegaverkefni þótt þingið hafi aldrei komið neitt að samgönguáætlun. Ég velti fyrir mér hvort ekki sé nauðsynlegt að við tryggjum einhverja lýðræðislega aðkomu til að mynda að svona risastórri ákvörðun sem væntanlega verður hægt að keyra í gegn með einhverjum hætti í gegnum slíka þingsályktun af því að þetta er mál sem varðar landsmenn alla, flutningskerfi raforku og hvað við leggjum undir af landinu til að geta flutt orku milli landshluta. Ég velti því ekki síst fyrir mér af því að þessar línur gætu legið yfir miðhálendið, miðhálendið sem rúmlega 60% landsmanna vilja friða og gera að þjóðgarði. Það þýðir að við erum ekki að fara að leggja háspennulínur yfir þetta sama miðhálendi.
Í allri þessari umræðu held ég að við verðum að átta okkur á því að með því að samþykkja þetta frumvarp þá erum við hugsanlega að skapa kerfi sem er ekki nægilega lýðræðislegt, sem svarar ekki þeim kröfum sem eru uppi í samtímanum um aðkomu almennings að ákvörðunum á öllum stigum. Sveitarfélögin missa þarna verulegt vald til ákvarðanatöku þegar kemur að skipulagsvaldi. Lýðræðinu er fyrir komið í umræðum á Alþingi um stefnu stjórnvalda um raflínur, í gildi þingsályktunar sem hefur verið dregið í efa í lögfræðiáliti á vegum þingsins, og hver á aðkoma almennings að vera? Við erum ekki með neina leið núna til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu svo dæmi sé tekið um samþykktar þingsályktanir. Ég er reyndar á því að slíkt ákvæði þurfi að koma í stjórnarskrá og ekki bara um samþykktar þingsályktanir heldur líka um stjórnvaldsákvarðanir, framkvæmdir á borð við þessa, þurfi þær ekki að vera samþykktar í þingsályktun. Ég held að það sé erfitt, það er a.m.k. mjög erfitt fyrir mig þannig að ég mun ekki geta samþykkt frumvarpið eins og það lítur út, meðan allir þessir ferlar eru vanræktir því hér erum við þó að tala um frumvarp. Þetta er dæmigert mál sem kannski enginn áttar sig á úti í samfélaginu hvað nákvæmlega snýst um þegar rætt er um kerfisáætlun. Það er stundum talað um kerfismál í umræðum í samfélaginu og við vitum að það merkir að maður skilur í raun og veru ekki um hvað málin snúast þegar menn tala um þau á kerfismáli og þetta frumvarp er gott dæmi um það. Það er meira að segja talað um kerfisáætlun og enginn skilur hvað í því felst. Umræðan á þingi varð hins vegar til þess að jákvæðar breytingar voru gerðar á málum en við tryggjum alls ekki með nægilega afgerandi hætti lýðræðislega aðkomu að öllum stigum málsins í samþykkt kerfisáætlunar. Og ég tek undir með hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur að allt of mikið vald er lagt í hendur Landsnets, flutningsfyrirtækisins, og hagsmunirnir sem eru undir er ekki bara orkuflutningar til landsmanna allra — sem vissulega eru mikilvægir og eins og hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir benti hérna í ræðu sinni, vissulega þarf að skoða byggðalínuna, hringtenginguna í þeim efnum og ræða það — en þegar við skoðum hina hagsmunina sem eru undir þá er það miðhálendið, miðhálendið sem meira en 60% landsmanna eru á að eigi að friða og breyta í þjóðgarð og það gerum við ekki með línulögnum.
Ágætur vinur minn, brottfluttur sem býr núna í Noregi, hafði samband við mig fyrir þessa umræðu og velti því fyrir sér hvort Grímur Thomsen sneri sér nú við í gröfinni, en hann orti ljóðið fræga Á Sprengisandi sem öll leikskólabörn læra að syngja og við syngjum auðvitað enn þar sem hann segir að ekki sé gott að verða á leið álfadrottningar á Sprengisand, og vinur minn sagði: Ég hugsa að Grímur Thomsen mundi snúa sér við í gröfinni ef hann fregnaði af því að hættan væri sú að maður mundi ekki mæta álfadrottningu á Sprengisandi heldur rekast á háspennulínu. Ég held að við þurfum að átta okkur á því að hér eru ansi stór mál undir, herra forseti, mál sem lúta ekki bara að einhverju kerfistungutaki heldur því hvernig við ætlum að fara nákvæmlega með þau auðæfi sem við eigum í miðhálendinu, auðæfi sem æ fleiri eru að átta sig á. Þau skipta ekki bara efnahagslegu máli eins og komið er raunar inn á í ágætu nefndaráliti minni hlutans í atvinnuveganefnd, hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þetta eru ekki aðeins efnahagsleg verðmæti heldur eru þetta líka verðmæti í sjálfu sér því á Íslandi eigum við ósnortin víðerni, þau stærstu í Evrópu, í miðhálendinu. Ég hef gjarnan sagt að hálendið hafi verið hér miklu lengur en við og verður vonandi miklu lengur en við líka og það skiptir máli hvernig við umgöngumst það meðan við erum á þessu landi okkar.
Ég hlýddi á viðtal um daginn við fræðimann sem hefur verið að rannsaka sálræn áhrif víðernanna, enda er það svo að æ fleiri jarðarbúar búa í manngerðu umhverfi og það á við um Ísland en það á að sjálfsögðu við um alla Evrópu. Hið manngerða umhverfi skapar miklu meira áreiti á líkama og sál en við áttum okkur á. Þessi fræðimaður, Páll Jakob Líndal, benti á að sálræn áhrif hálendisins og víðernanna hefðu í raun og veru ekki verið nægilega rannsökuð. Þetta er einn af þeim þáttum sem ég hef verið að benda á í þeirri umræðu sem við höfum átt hér á þingi undanfarna daga og vikur að við hneigjumst til að ræða málin út frá mjög þröngum sjónarhornum. Stundum finnst mér eins og við stjórnmálamenn teljum að við séum fyrst og fremst þjónar hagkerfisins. Raunar benti Páll Skúlason heitinn á að það væri kannski vandamál vestrænna stjórnmála að stjórnmálamenn töluðu ávallt sem þjónar hagkerfisins en gleymdu öðrum sjónarmiðum, hinum andlegu sjónarmiðum, og leyfðu sér ekki jafnvel að viðra þau því þau væru útmáluð sem tilfinningasemi af því að ekki væri hægt að mæla þau í krónum og aurum. Vissulega er það svo að meira að segja þegar við ræðum um náttúruna eða menninguna, þessar stoðir sem byggja sjálfsmynd okkar sem þjóðar, þá eigum við til að setja þau líka upp á mælistiku króna og aura, reyna að verðmeta hálendið með því að telja ferðamenn, reyna að verðmeta menninguna með því að kortleggja hagræn áhrif hinna skapandi greina, en þetta er ekki svo einfalt. Og við stjórnmálamenn verðum að þora að ræða önnur sjónarmið en bara þau efnahagslegu. Við verðum að horfast í augu við að hlutverk okkar er mikilvægt þegar kemur að því að standa vörð um ósnortin víðerni á Íslandi. Það eru ekki bara efnahagsleg sjónarmið sem þar ráða för heldur gildi náttúrunnar en einnig geta falist í þessum víðernum ómetanleg andleg auðæfi fyrir þá sem þau sækja heim, flýja hið manngerða umhverfi og sækja í kyrrð öræfanna sem er orðin æ vandfundnari, öræfakyrrðin.
Það er kannski tvennt sem mér finnst mikilvægt að við höfum í huga áður en við samþykkjum þetta frumvarp eða réttara sagt meiri hluti Alþingis afgreiðir þetta frumvarp. Minn hugur stendur ekki til þess eins og ég gerði grein fyrir. Það er í fyrsta lagi að lýðræðislegir ferlar verði skilgreindir með miklu skýrari hætti þannig að aðkoma sveitarfélaganna verði tryggð og að almenningur í landinu, þ.e. fólkið sem veitir okkur sem hér erum þau völd að vera hér, fólkið sem við störfum í umboði fyrir, fái miklu skýrari aðkomu að þessu ferli frá byrjun þannig að þetta verði ekki bara einhver umræða á þingi og þingsályktun hverrar gildi menn efast svo jafnvel um síðar.
Hinn punkturinn er sá að þegar rætt er um línulagnir þá er ekki sama hvar þær eru og þá skiptir auðvitað miðhálendið mestu, það skiptir mestu að við hugum að grafarró Gríms Thomsens þannig að hann fari nú ekki að snúa sér við í gröfinni þegar álfadrottningin hrekst frá háspennumöstrunum og við áttum okkur á því að þar eigum við ómetanleg auðæfi sem við berum mikla ábyrgð gagnvart og við þurfum að sýna það í verki að við séum fær um að standa undir þeirri ábyrgð.
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara yfir þá úrskurði sem hér voru nefndir af hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, ég hef ekki tíma til þess, en þessi tvö sjónarmið tel ég mikilvægast að séu tekin til rækilegrar skoðunar áður en frumvarpið verður tekið til afgreiðslu. Ég ítreka þó að þær breytingar sem gerðar hafa verið eru til bóta, en enn þá þykir mér þetta frumvarp ekki nægilega gott til að ég geti stutt við bakið á því. Þar skortir annars vegar hina lýðræðislegu aðkomu og hins vegar vernd hálendisins, herra forseti.