144. löggjafarþing — 112. fundur,  26. maí 2015.

raforkulög.

305. mál
[22:08]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar að varpa tveimur spurningum til hv. þingmanns. Hin fyrsta varðar réttinn til eignarnáms. Telur hv. þingmaður sem gerði hér að umræðuefni þróun í rétti að því er varðar eignarnám að það sé í reynd réttlætanlegt að taka undir línur land með eignarnámi til að uppfylla samning sem er á milli tveggja óskyldra aðila á markaði? Ég hef stórar efasemdir um það og hef viðrað það í umræðum síðustu daga og á mér skoðanabróður ef hæstv. menntamálaráðherra er enn sömu skoðunar og hann var í fyrstu ræðu sinni á Alþingi 2007. Þetta er fyrri spurningin.

Seinni spurningin varðar miðhálendið. Ég er þeirrar skoðunar að víglínur í náttúruvernd liggi ekki um neðri hluta Þjórsár heldur við jaðar hálendisins eins og ég skýrði á síðustu dögum efasemdir mínar um Skrokköldu og ýmislegt fleira. Út af þessum vangaveltum hv. þingmanns um hugsanlega línu yfir Sprengisand verð ég að segja að það er margt sem er að teikna sig upp til þess að það sé veruleiki. Ég deili ekki á Landsnet fyrir að velta því fyrir sér, en um það á að taka lýðræðislega ákvörðun og menn þurfa að komast að þeirri umræðu með einhverjum hætti. Spurning mín til hv. þingmanns er þessi: Telur hann hugsanlegt að búa um þau mál sem lúta að mögulegri línulögn yfir hálendið með sérstöku ákvæði í þessu frumvarpi sem mundi tryggja það að slík ákvörðun kæmi alltaf með sérstökum hætti til kasta Alþingis?