raforkulög.
Herra forseti. Ég þekki það nú að hv. þingmaður er illvígur í öllum þeim málum sem hann er andstæður. Varðandi eignarnámið þá er ég þeirrar skoðunar, eins og hv. þingmaður, að það þurfi að vera mjög ríkir almannahagsmunir til að í slíkt sé ráðist. Þeir gætu til dæmis verið ef það væri orkuskortur. Þá verða menn að bíta í það súra epli. Ég á kannski erfitt með að koma orðum að því en mér finnst mjög hart, ef ég reyni að nálgast þetta mál með sanngjörnum hætti, þegar deilur standa á milli til dæmis náttúruverndarsinna og nýtingarsinna og taka á land eignarnámi til að uppfylla samning á milli orkuframleiðanda og orkukaupanda, þ.e. stóriðjuvers, og náttúruverndarsinnarnir eða samtökin eiga hvergi kost á því að koma að málinu nema hugsanlega ef þau væru viljug til að kaupa viðkomandi land dýru verði. Mér finnst að þau eigi alla vega að standa með einhverjum hætti jafnfætis í því að eiga kost á því. Þetta er hugsanlega hugsun sem á uppruna sinn meðal fríhyggjumanna sem fyrrverandi formaður Lögmannafélags Íslands tilheyrir. (Gripið fram í.) Þetta er sjónarmið sem mér finnst að eigi að taka inn í bæði umræður um þetta frumvarp og um rammann.
Tímamót, segir hv. þingmaður, ef það á að ráðast í mannvirkjagerð á hálendinu. Það eru ekki meiri tímamót en svo að við vorum að leggja til hliðar þingsályktunartillögu þar sem beinlínis er tekið fyrsta skrefið að því. Það er lagt fram á svipuðum tíma og menn ræða það í fullri alvöru að fara yfir Sprengisand með þessum hætti. Sú umræða hefur ekki átt sér stað meðal þjóðarinnar. Því segi ég að það frumvarp sem hér er verið að samþykkja kemur ekki í veg fyrir það, ekki heldur með þeim breytingum sem hv. þm. Páll J. Pálsson hefur útlistað hér í kvöld.