144. löggjafarþing — 113. fundur,  27. maí 2015.

rannsókn kjörbréfs.

[10:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Bjartrar framtíðar um að Björt Ólafsdóttir, hv. 6. þm. Reykv. n., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir því að í dag taki Eldar Ástþórsson sæti á Alþingi en hann er 2. varamaður á lista Bjartrar framtíðar í kjördæminu. 1. varamaður á lista í kjördæminu hefur boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Eldari Ástþórssyni. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.