störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þegar deilur eiga sér stað, eins og á hinu háa Alþingi undanfarnar vikur, þá tel ég að þingmönnum hætti til þess að gleyma því að fólk í samfélaginu er ekki á Alþingi. Því er hætt við að hv. alþingismenn einangri sig frá því sem er að gerast í samfélaginu. Til að sporna við þessu legg ég enn og aftur til að þegar við lítum fram á veginn þá hugsum við um lýðræði, þá hugsum við um aðferðir sem gera almenningi kleift að taka stjórnvölinn þegar hann vill fá eða einhver ákveðinn hluti almennings þannig að við á hinu háa Alþingi getum aldrei gleymt þjóðinni og í umboði hvers við störfum.
Það eru mjög mörg atriði sem hægt er að tiltaka. Þau eru miseinföld og misódýr, en öll eru þau einföld og öll eru þau ódýr. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru ekki dýrar. Þær eru ekki flóknar. Það er auðvelt að koma hér á sterkara og betra og siðmenntaðra lýðræði sem gerir almenningi kleift að ákveða fyrir eigin hönd hvernig forgangsröðun hins háa Alþingis á að vera, í það minnsta í meginatriðum.
Deilur eins og þær sem hafa verið hér upp á síðkastið eiga ekki að eiga sér stað. Við eigum aldrei að líta á þessar deilur sem eðlilegan hlut af því hvernig Alþingi starfar. Ég held að enginn geri það, sem betur fer, alla vega ekki til lengri tíma. Þegar við lítum fram á veginn eigum við ekki að kenna hvert öðru um og þegar þjóðin vill fá að ráða einhverju eigum við ekki að láta eins og það sé sjálfkrafa ósigur stjórnmálamanna sem hafa aðrar skoðanir heldur eigum við að bera virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti alls fólks, hvort sem í hlut eiga einstaklingar eða hópar.
Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.