slysatryggingar almannatrygginga.
Herra forseti. Ég ætla rétt aðeins að koma inn á þetta mál sem fjallar um slysatryggingar almannatrygginga. Í sjálfu sér er ekki mikil breyting frá því sem var, en þó eru einhver atriði sem vert er að fara aðeins yfir og spá í af því að tvö önnur mál eru samhangandi við þetta. Það sem skilur málin kannski svolítið í sundur er að öll velferðarnefnd stendur að baki þessu máli en það er ekki svo um þau sem á eftir koma.
Það sem ég velti fyrir mér snýr að þeim sem eru í raun tryggðir. Hér eru taldir upp slysatryggðir samkvæmt 7. gr. Meðal annars er talað um nemendur í iðnnámi, löggiltum iðngreinum og starfsnámi og þá sem stunda nám í heilbrigðisgreinum, raunvísindum og háskólanema þegar þeir sinna verklegu námi. Svo er íþróttafólk sem tekur þátt í íþróttaiðkunum, hvort heldur er æfingum, sýningum eða keppni og er orðið 16 ára. Það hefur verið mikill styr um þetta því að það hefur verið í höndum sveitarfélaganna að ákveða hvort þau tryggi sína nemendur. Nú kem ég úr skólakerfinu og það hefur stundum verið erfitt að sækja bætur vegna slysa sem hafa átt sér stað á skólatíma og foreldrar hafa jafnan talið að börnin sín væru tryggð. Sums staðar eru þau það en annars staðar ekki því að það er algjörlega valkvætt af hálfu sveitarfélagsins. Þetta er eitthvað sem ég tel að þurfi að koma hér inn sem viðbótarliður, þ.e. að á meðan nemendur í grunnskóla eru við nám eða störf í skólanum séu þeir tryggðir með þeirri slysatryggingu sem við fjöllum hér um.
8. gr. fjallar um tryggingu við heimilisstörf. Það er eitthvað sem við veljum þegar við skilum skattframtalinu okkar. Hér var verið að tala um þá sem minna mega sín og hafa minna á milli handanna en margur og kannski er ástæðan fyrir því að þetta fólk er ekki tryggt sú að það er illa statt fjárhagslega og hakar væntanlega ekki við þennan lið í skattframtalinu þó að þetta séu ekki stórar fjárhæðir en hver króna skiptir miklu máli. Þetta fólk á líka börn í grunnskóla og kaupir sér jafnvel ekki prívattryggingu. Við stöndum kannski frammi fyrir því að of stór hópur barna býr við fátækt og við náum ekki utan um það að öllu leyti, hvorki með þessu né öðru sem við erum að takast á við, því miður því að þarna höfum við tækifæri. Ef maður veltir auk þess fyrir sér dagpeningagreiðslunni í 11. gr. og hversu háar greiðslur eru á hverjum degi ef fólk þarf að vera frá vegna slysa, sem greiðast reyndar frá og með áttunda degi og viðkomandi þarf að hafa verið óvinnufær í tíu daga. Það eru 1.727 kr. á dag miðað við uppfærsluna sem velferðarnefnd gerir hér tillögu um. Það er ekki margt hægt að fá fyrir 1.700 kr. eins og við vitum. Þegar fólk þarf í rauninni að lifa algjörlega á þessum fjármunum þá fæ ég engan veginn séð hvernig það er hægt. Maður fær tæplega 400 kr. fyrir hvert barn sem maður er með á framfæri. Í rauninni má þetta ekki fara fram úr ¾ af tekjum bótaþega af þeirri atvinnu sem hann stundaði þegar slysið varð. Ef við erum að tala um fólk sem er jafnvel í hlutastarfi eða engri vinnu og slasast þá er staðan afskaplega dapurleg.
Ég fæ, eins og margur þingmaðurinn, alls konar pósta og í dag barst mér tölvupóstur þar sem öryrki bar bætur sínar saman við neysluviðmið velferðarráðuneytisins í maí. Viðkomandi segist þurfa 236.000 kr. á mánuði miðað við þau viðmið fyrir utan húsnæðiskostnað. Tekjur viðkomandi eru 218.000, sem þýðir að útborgaðar tekjur eru í kringum 187.000. Forsendurnar eru þær að viðkomandi er einn og býr á höfuðborgarsvæðinu og borgar 78.000 í leigu, sem þýðir að viðkomandi þyrfti að hafa um 314.000 á mánuði miðað við viðmið velferðarráðuneytisins. Það er eiginlega alveg óskiljanlegt af hverju okkur gengur ekki betur að ná þessum tölum upp í það viðmið sem ráðuneytið setur sér, hvorki var það fyrir hrun né hefur náðst eftir hrun. Það er þessi hópur sem maður hefur áhyggjur af þegar kemur að bótum sem ríkið greiðir, sem eru einhverra hluta vegna alltaf allt of lágar.
Ég tek undir það sem hv. þm. Guðbjartur Hannesson sagði hér áðan. Það er auðvitað hluti af mannréttindum að geta annars vegar sem samfélag tekið utan um það fólk sem einhverra hluta vegna þarf að njóta slíkra dagpeninga og hins vegar ættum við að taka þetta heildstætt, ekki bara inn í atvinnuleysis- og slysabætur heldur alla leið.
Nú höfum við mikið fjallað um kjör fólks sem býr við lág laun á vinnumarkaðnum. Viðmið velferðarráðuneytisins eru þessi fyrir utan húsnæðiskostnað og einhleypingur þarf að hafa 314.000 og menn hafa verið að krefjast 300.000 kr. lágmarkslauna á næstu þremur árum, hvað þá þeir sem hafa enn minna. Auðvitað eigum við að taka bæturnar inn í þetta líka.
Umsagnir Vinnueftirlitsins og frá ASÍ vöktu athygli mína, eins og kannski fleiri sem hafa fjallað um þetta mál, en nefndin ákvað að láta það bíða heildarendurskoðunar að skilgreina slys, þ.e. ákvæðið um utanaðkomandi atburð sem veldur meiðslum á líkama þess sem tryggður er og gerist án vilja hans. Það er í sjálfu sér miður að þetta skuli vera áfram borið svona fram, en ég geri ráð fyrir því að þetta hafi verið samkomulag til þess að málið fengi hér framgang sem það fær væntanlega. En það kemur fram í umsögn ASÍ að slysahugtakið eins og það er skilgreint í frumvarpinu samræmist hvorki alþjóðlegum skilgreiningum né þeirri skilgreiningu sem Vinnumálastofnun leggur fram.
Í umsögn ASÍ er bent á að í 2. mgr. 5. gr. verði ekki talað um nauðsynlegar ferðir heldur sé maður á eðlilegri leið og lagt til að þeirri grein verði breytt. Ef ég hef lesið rétt þá sýnist mér orðalagsbreytingar ekki heldur hafa náð fram þar sem segir í umsögninni, með leyfi forseta:
„Í sendiferð í þágu atvinnurekstrar eða á eðlilegri leið til vinnu og frá, enda sé um að ræða ferðir sem eru farnar samdægurs milli vinnustaðar og heimilis eða matstaðar. Hafi maður vegna vinnu sinnar viðlegustað utan heimilis kemur viðlegustaður í stað heimilis og tekur þá tryggingin einnig til eðlilegra ferða milli heimilis og viðlegustaðar. Sama gildir um lengri ferðir af þessu tagi ef starfsmaður er á launum hjá vinnuveitanda í ferðinni.“
Þótt einfalt sé að breyta „nauðsynlegum“ í „eðlilegum“ í þessari setningu þá hefur það ekki verið tekið hér inn.
Það kemur fram hjá Vinnueftirlitinu, eins og ég sagði hér áðan, að lagareglur nágrannalandanna vegna bótaréttarins, hvort sem um er að ræða atvinnusjúkdóma eða vinnuslysa, eru ekki sambærilegar. Bent er á ákveðin atriði því til staðfestingar og talið að það hafi mikið að segja gagnvart forvarnastarfi til að fyrirbyggja vinnuslys sem ætti auðvitað að spara samfélaginu þegar fram í sækir ef haldið er utan um það og skilgreiningarhlutir eru á hreinu. Það virðist mjög oft vera þannig bæði í lögum og reglugerðum sem við erum að setja að menn geta túlkað á mismunandi hátt, samanber það mál sem við höfum fjallað sem lengst um hér síðustu daga þar sem um skilgreiningu orðalags er að ræða og fólk ákveður að skilja lögin á mismunandi hátt. Það er mjög bagalegt ef svo er.
Það segir líka í umsögn Vinnueftirlitsins um þennan utanaðkomandi atburð sem veldur meiðslum að 55–97 atvik á hverju ári séu útilokuð, m.a. þar sem fólk hefur ofreynt sig og það hefur síðan valdið vinnuslysi. Þar erum við líka að tala um fólk í umönnunarstéttum sem bograr mikið eða er að lyfta fólki o.s.frv. Hér er tekið dæmi um slys sem varð þegar slasaði var að rétta hurð og fann smell í vinstri öxl með þeim afleiðingum að hann tognaði. Þetta atvik telst ekki sem utanaðkomandi atburður eða þykir bótaskylt. Undanfarinn hefur kannski verið sá að viðkomandi lyfti einhverju þungu, sjúklingi jafnvel, og síðan gerist þetta sem verður til þess að viðkomandi fær ekki bætur, a.m.k. virðist það vera niðurstaðan miðað við það sem kemur fram hjá Vinneftirlitinu. Það er mjög bagalegt ef Tryggingastofnun finnur leiðir til þess að komast hjá greiðslu fyrir hönd ríkisins og slysatrygginga, eins og hér virðist ýjað að. Það er auðvitað ekki eitthvað sem á að leggja upp með þó að vissulega geri maður kröfu um vönduð vinnubrögð og fólk leggi fram öll tilskilin gögn og allt slíkt. Þetta má ekki vera svo íþyngjandi að fólk gefist upp á því að leita réttar síns. Kannski er það einmitt eitt af því sem hefur gerst. Ég hef sjálf heyrt að fólk leiti ekki réttar síns vegna þess að kerfið sé svo þungt í vöfum og svo flókið að fólk gefist upp.
Ég hlýt að taka undir með Vinnueftirlitinu að skilgreining á vinnuslysi sé eðlileg. Í ljósi þess að við vorum að ræða samræmingu hér áðan í EES-gjörð varðandi höfundarverk og höfundarétt þá er öllu mikilvægara að við getum samræmt lögin til hins betra varðandi skilgreiningu á vinnuslysi. Þeir hjá Vinnueftirlitinu vísa einmitt til þess að við eigum sambærilega tölfræði sem snýr meðal annars að forvörnum, eins og ég nefndi áðan, en þeir segja að það sé ekki í þessu frumvarpi sem sé ekki það sem tíðkist almennt á alþjóðavettvangi sem við viljum bera okkur saman við. Ég held að við hljótum að þurfa að hafa það í huga. Nú er verið að aðskilja þetta mál, þ.e. slysatryggingarnar, frá almannatryggingunum þannig að þótt við breytum einhverju í almannatryggingunum og samþykkjum þetta svona fyrirliggjandi þá erum við auðvitað að fresta því til framtíðar að takast á við þetta.
Það er líka athugunarvert að sú tilkynningarskylda sem á að vera samkvæmt reglugerð frá 2011, um tilkynningu á atvinnusjúkdómum, virðist ekki hafa virkjast. Munurinn á því hvernig þetta er hér og annars staðar á Norðurlöndunum er sláandi. Hér eru að meðaltali innan við 20 atvinnusjúkdómar tilkynntir til Vinnueftirlitsins. Síðan er talað um og vitnað til þess að í Danmörku eru um 19.000 atvinnusjúkdómar tilkynntir. Þetta er ótrúlega mikill munur. Það er eitthvað bogið við þetta. Það er eitthvað ekki alveg rétt hér hjá okkur þrátt fyrir að við gefum okkur, eins og hér er sagt, að danski vinnumarkaðurinn sé 15 sinnum stærri því að þá mættum við gera ráð fyrir um það bil 270 tilkynningum um atvinnusjúkdóma hér á landi. Að mati Vinnueftirlitsins þýðir þetta að hugsanlega sé hægt að koma í veg fyrir 250 tilvik þar sem um er að ræða atvinnutengt heilsutjón eða mögulega örorku. Það er miklu þyngra fyrir samfélagið þegar fram í sækir en að borga hér afar lágar slysabætur.
Virðulegi forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að fara neitt mjög djúpt ofan í þetta, en það sem ég hef hlustað á hér í dag og það sem ég hef lesið og við höfum verið að ræða setur okkur inn í fleiri mál. Þetta er hluti af því sem snýr að kjaramálum fólks sem hér er úti að berjast. Það skiptir líka máli að ekki sé flókið að sækja um allar slíkar bætur eða það sem fólk á rétt á og fjárhæðirnar mega heldur ekki vera svo lágar að fólk geti varla keypt sér mjólk og brauð, hvað þá eitthvað handa börnunum ef það hefur 2.000 kr. á dag til að lifa. Ég held að það sjái hver maður að það gengur ekki.