144. löggjafarþing — 114. fundur,  28. maí 2015.

raforkulög.

305. mál
[11:00]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég hefði viljað skora á meiri hlutann að styðja þessa tillögu og ég spyr mig: Hvers vegna ekki? ef þeir gera það ekki. Er það þá vegna þess að menn vilja að ákvarðanir verði teknar og/eða undirbúningur verði í gangi um línulagnir yfir miðhálendið á næstu missirum? Er það ástæðan fyrir því að meiri hlutinn getur ekki einu sinni róað öldurnar með því að standa að þessari tillögu sem felur það eitt í sér að engar ákvarðanir verði teknar eða undirbúningur fari fram sem bindi á nokkurn hátt hendur manna þegar framtíðarstefnan kemur fyrir Alþingi haustið 2016, ný kerfisáætlun hefur verið unnin o.s.frv.? Það vekur mér mikinn ugg, satt best að segja, ef meiri hlutinn treystir sér ekki til að styðja þessa tillögu.