144. löggjafarþing — 114. fundur, 28. maí 2015.
lyfjalög.
408. mál
Virðulegi forseti. Það gefur augaleið að í sjónvarpsauglýsingum er erfitt að koma miklum upplýsingum fyrir þannig að við verðum að treysta því og treysta á að þeir sem kaupa þessi lyf afli sér upplýsinga. Þá er bent á það í auglýsingunni hvar þær upplýsingar er að hafa.
Eins og tæknin er orðin í dag er sjónvarpið nánast orðið í öllum tölvum sem er eiginlega ástæðan fyrir þessum breytingum, þ.e. að hindra þann mismun sem er á þessum ljósvökum báðum.