lyfjalög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Ég skal alveg viðurkenna að ég var fullur efasemda og spurði oft í nefndinni hvort það væri einhver þörf á þessu og hve mikil þörfin væri. Eins og ég sagði áðan er lyfjanotkun á Íslandi allt of mikil og ég hefði frekar haldið að það væri meiri þörf á því að minnka þá notkun. Veruleikinn er hins vegar sá í dag að ég sé bara ekki fram á að við getum farið að banna lyfjaauglýsingar á þessari tækniöld á netinu og öllum þeim miðlum. Þar fyrir utan er munurinn á fæðubótarefnum og lyfjum svo óljós.