meðferð elds og varnir gegn gróðureldum.
Virðulegur forseti. Ég er með nefndarálitinu um þetta mál og tel það í meginatriðum til bóta. Við fengum þó við umfjöllun málsins töluverðar athugasemdir frá Veðurstofu Íslands sem vörðuðu aðallega þá sýn að taka til við aðferðafræði mats á náttúruvá í víðara samhengi þegar gróðureldar eru annars vegar. Það er að mínu mati afar mikilvægt að svo sé gert, en það fjallar þá kannski um þennan málaflokk í víðara samhengi en við erum að leggja til með þessu frumvarpi sem ég styð.
Ég vil geta þess sérstaklega, af því að hv. þm Róbert Marshall fór yfir breytingartillögu sína um bann við sinubrunum með sólarlagsákvæði til fimm ára, að ég styð þá tillögu og tel að hún sé sett fram á grundvelli skynsamlegs mats á þeim gögnum og umsögnum sem við höfum fengið. Úr því að lögin eru opin í þessum skilningi og við erum að skoða það, og eigum að gera það með opnum huga, hvernig við mundum haga þessum málum ef við værum að koma á byrjunarreit finnst mér málefnalegt og skynsamlegt að nálgast það með þeim hætti að það sem út af standi sé í raun og veru menningarlegs eðlis, þ.e. það eru nokkrir bændur sem enn stunda sinubruna vegna hefðar, liggur mér við að segja, miklu frekar en að það sé rökstutt með nokkrum sannfærandi vísindalegum eða búnaðarfræðilegum rökum. Það að leggja til að bannið taki gildi eftir fimm ár finnst mér efnislega rétt vegna þess að þá er hægt að nota þennan fimm ára tíma til að meta hvort of langt sé gengið og hvort þá þurfi annaðhvort að lengja í tímanum eða fara inn í lögin til að þrengja heimildir til að leyfa sinubruna eða nálgast það með öðrum hætti.
Mér finnst gott að breytingartillagan komi fram og gott að umræðan um þetta mál nái inn í þingsali. Þó að það kunni að virðast lítið mál varðar þetta gríðarlega mikla almannahagsmuni, bæði að því er varðar loftgæði og ekki síður þá miklu hættu sem getur skapast þegar sinubruni fer úr böndunum eins og við höfum því miður allnokkur dæmi um.