144. löggjafarþing — 115. fundur,  29. maí 2015.

skattbreytingar og ávinningur launþega.

[11:13]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Í fjölmiðlum hefur að undanförnu verið fjallað nokkuð um framlag ríkisstjórnarinnar í skattalækkunum til að greiða fyrir gerð kjarasamninga en við höfum í sjálfu sér fengið nokkuð brotakenndar fréttir af því hvað þar er á ferðinni. Fyrst vil ég segja að við fögnum því að ríkisstjórnin komi fram með tillögur um skattalækkanir og fyrir löngu er orðið mikilvægt að meðaltekjuhópar fái kjarabætur, en við höfum líka kallað eftir því að skattkerfið sé nýtt til tekjujöfnunar. Þegar maður horfir á þær tölur sem kastað hefur verið fram í umræðunni og þær upplýsingar sem hafa verið á ferð í fjölmiðlum þá virðist staðan vera sú að um helmingur þjóðarinnar fái lítið sem ekkert út úr þessum breytingum, þ.e. fólk á miðgildi tekna og þar fyrir neðan fái 1 þús. kr. eða minna í sinn hlut vegna þessara breytinga og þeir sem eru undir 310 þús. kr. ekki neitt.

Ég vildi þess vegna spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Er þetta réttur skilningur? Hvernig hyggst ríkisstjórnin mæta fólki á lágum tekjum sem hefur setið eftir við skattbreytingar ríkisstjórnarinnar hingað til? Hvernig hyggst ríkisstjórnin tryggja að aldraðir njóti ávinnings með sama hætti og nú er verið að semja um á almennum vinnumarkaði? Mun ríkisstjórnin tryggja að aldraðir muni fara upp í 300 þús. kr. á samningstímabilinu? Hvernig verður með örorkulífeyrisþega, mun ríkisstjórnin tryggja jafnstöðu þeirra að þessu leyti? Munu atvinnuleysisbætur hækka líka með sama hætti? Hvert verður með öðrum orðum framlag ríkisstjórnarinnar til þess að styðja við þá sem eru á neðri hluta tekjustigans í þessum aðgerðum öllum?