144. löggjafarþing — 115. fundur,  29. maí 2015.

fjárframlög til túlkasjóðs.

[11:46]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að leysa þetta mál. Fyrsta skrefið gæti verið það að leyfa Samskiptamiðstöð að opna núna milli ársfjórðunga þannig að þau fengju að nýta sjóðinn áfram til þeirra verkefna sem ég var að lesa upp áðan og að ráðuneytið vinni að varanlegri lausn með Samskiptamiðstöð fram á haustið. Við erum þá að tala um að nýta það framlag sem er í sjóðnum á fjárlögum yfirstandandi árs.

Við verðum að viðurkenna og við verðum að horfast í augu við það að með lögunum frá 2010 vorum við að viðurkenna táknmál sem móðurmál heyrnarlausra, sem móðurmál þessa hóps. Það er breyting. Móðurmál verður að hafa stöðu og það verður að fylgja því einhvers konar vilji. Sá vilji verður að kristallast líka í peningum en ekki með tilvísun í að það sé sannarlega verið að eyða í táknmálstúlkun annars staðar í samfélaginu, vegna þess að breytingin er sú að við höfum sagt það hvert og eitt með því að ýta á græna takkann hér í þingsal að við viljum að (Forseti hringir.) táknmál sé móðurmál þessa hóps (Forseti hringir.) og þá verðum við að sýna það í verki, virðulegur forseti.