144. löggjafarþing — 115. fundur,  29. maí 2015.

fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.

770. mál
[12:10]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Uppbygging samgöngumannvirkja, hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu eða úti um land, á sér stað í samvinnu milli ríkis og sveitarfélaga. Sú stefna sem sett er fram af hálfu sveitarfélags þarf líka að endurspeglast einhvern veginn í þeim vilja sem ríkið hefur til uppbyggingar á samgöngumannvirkjum. Sú stefna sem hv. þingmaður vísar til er enn í drögum að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og hefur ekki með neinum formlegum hætti verið rædd á vettvangi samgönguyfirvalda á landsvísu.

Ég vil segja það sem mína eindregnu skoðun að um leið og menn vilja auka möguleika um ólíka fararmáta mega menn ekki gleyma því að það er samt hér töluvert mikill fjöldi fólks sem þarf að komast um á bílum. Og það er þannig á höfuðborgarsvæðinu að það er inni töluverð fjárfestingarþörf í stofnvegakerfinu. Það hefur verið skoðun samgönguyfirvalda á landsvísu að Sundabraut sé framkvæmd sem skipti verulega (Forseti hringir.) miklu máli í því tilliti. Það er ekkert hægt að stilla því þannig upp að annaðhvort (Forseti hringir.) verði að vera hjól og lestar eða þá bara ekkert. Þetta hlýtur að geta gengið einhvern veginn saman.

Það hefur engin ákvörðun verið tekin af hálfu samgönguyfirvalda um að fara í léttlestakerfið hér enn sem komið er, slík ákvörðun hefur ekki verið tekin. Menn verða (Forseti hringir.) bara að horfa á það ástand sem nú er á höfuðborgarsvæðinu (Forseti hringir.) og það er þannig að það verður að fara í framkvæmdir hér.